Kirkjulistavika í Akureyrarkirkju

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur fjórum sinnum tekið þátt í hátíðartónleikum á Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju.

Árið 1999 var Messe Solenelle de Sainte Cécile eftir Charles Gounod flutt á tónleikum í Íþróttaskemmunni á Akureyri. Einnig var flutt Passacaglia eftir Pál Ísólfsson. Flytjendur með hljómsveitinni voru kirkjukórar á Eyjafjarðarsvæðinu og einsöngvararnir Björg Þórhallsdóttir, Óskar Pétursson og Jóhann Smári Sævarsson.

Árið 2001 voru Svanavatnið eftir P.I. Tchaikowsky og Messa di Gloria eftir Giacomo Puccini flutt í Íþróttaskemmunni á Akureyri. Þátttakendur voru Kór Akureyrarkirkju, Kór Glerárkirkju, Karlakór Akureyrar-Geysir og Samkór Svarfdæla. Einsöngvarar voru Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Michael Jón Clarke.

Árið 2003 var Requim eftir G. Verdi flutt á hátíðartónleikum í Íþróttahöllinni. Kórar sem tóku þátt voru Kór Akureyrarkirkju Kór Langholtskirkju og Kammerkór Norðurlands. Einsöngvarar voru Björg Þórhallsdóttir, Annamaria Chiuri, Kristján Jóhannsson og Kristinn Sigmundsson.

Árið 2007 voru Hátíðartónleikar Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju þar sem á efnisskrá var Rómeó og Júlía, fantasíuforleikur eftir P.I. Tchaikowsky, Sinfónía fyrir orgel og hljómsveit eftir F.A.Guilmant og Te deum eftir A. Dvorák. Kórar sem tóku þátt voru Kór Akureyrarkirkju og Kammerkór Norðurlands. Einleikari var Björn Steinar Sólbergsson og einsöngvarar voru Hanna Dóra Sturludóttir og Ágúst Ólafsson.