Afmælistónleikar BM Vallá

Útitónleikar sem haldnir voru í Listagilinu á Akureyri á Akureyrarvöku 26. ágúst árið 2008 voru teknir upp og gefnir út á mynddiski. Tónleikarnir voru kostaðir af fyrirtækinu BM Vallá í tilefni 60 ára afmælis fyrirtækisins. Á þessum tónleikum komu fimm einsöngvarar fram með hljómsveitinni, en það voru þau Arndís Halla Ásgeirsdóttir, Sigríður Aðalsteinsdóttir, Kolbeinn Ketilsson, Ólafur Kjartan Sigurðarson og Kristinn Sigmundsson. Stjórnandi var Guðmundur Óli Gunnarsson. Fyrirtækið gaf síðan hljómsveitinni upplagið af diskunum til ráðstöfunar. Má segja að þessir tónleikar á Akureyrarvöku, ásamt tónleikum á Menningarnótt í Reykjavík viku fyrr, hafi verið eitt viðamesta verkefnið sem hljómsveitin hefur tekist á við.