Stúlkan í turninum

Í nóvember 2006 kom út geisladiskur með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Um er að ræða tónverk eftir Snorra Sigfús Birgisson við ævintýrið um Stúlkuna í turninum eftir Jónas Hallgrímsson. Snorri Sigfús samdi tónverkið að beiðni SN sem flutti það á skólatónleikum í grunnskólum á Norðurlandi haustið 2005. Upptaka á tónverkinu var gerð í tónlistarhúsinu Laugarborg í janúar árið 2006. Í bæklingi með geisladiskinum er ævintýri Jónasar prentað í heild sinni með myndskreytingum listakonunnar Veronicu Nahmias, sem búsett er í Hollandi og vel þekkt þar í landi m.a. fyrir að myndskreyta barnabækur. Þá er í bæklingnum ritgerð eftir Pál Valsson sem hann nefnir Jónas og uglurnar.

Útgáfan var styrkt af afmælisnefnd Jónasar Hallgrímssonar í tilefni af 200 ára ártíð skáldsins.