Til að skoða alla gerða samninga við FÍH smellið hér
Haustið 2005 var undirritaður kjarasamningur milli Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands annarsvegar og Félags íslenskra hljómlistarmanna hinsvegar um kaup og kjör hljóðfæraleikara í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Þetta var stórt skref fyrir hljómsveitina og hljóðfæraleikarana. Samningurinn var gerður til þriggja ára og í október 2008 var hann endurnýjaður til eins árs. Stefnt er að því að innan fárra ára verði laun hjá SN sambærileg við laun lausráðinna hljóðfæraleikara hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Með það í huga gerðu samningamenn eftirfarandi bókun í samninginn:
Aðilar samninga þessa eru sammála um að stefnt skuli að því að innan 5 ára verði laun hljómlistarmanna starfandi hjá SN sambærileg launum lausráðinna hljómlistarmanna Sinfóníuhljómsveitar Íslands