Tónaveisla

Tónaveisla nefnist myndband sem tekið var upp á tónleikum 28. mars 2002 í Íþróttahöllinni á Akureyri. Þar komu fram með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Óskar Pétursson, Karlakórinn Heimir og Álftagerðisbræður. Stjórnandi á tónleikunum var Guðmundur Óli Gunnarsson. Framkvæmdaraðili tónleikanna var Gísli Sigurgeirsson. Um upptöku og útgáfu myndbandsins sá Listalíf.